21september

Roswell:q



*Roswell þættirnir*      


Nú er maður búin með þrjár seríur af Roswell,
ekkert smá húkkt á þessu rugli...

Þetta eru snilldar þættir

Hérna eru myndir af leikurunumHlæjandi


                                                                                                                                                        

                               
                                                                               
                


  



Ég fæ alltaf æði fyrir einhverjum þáttum og verð að klára allt efnið það strax
Skömmustulegur

Hef núna undanfarið fengið æði fyrir :

 how i met your mother
The class
Heroes
Supernatrual
One tree hill
Ghost Whisperer
..........................................

Yfir í annað þá er bara allt gott af frétta af okkur systrum eru ný komnar frá spáni sem var bara snilld og rólegheitHlæjandi
Fórum til Mijas sem er rosalega fallegt í fjallaþorp ...
Fórum þar rosalega fínt út að borða og
fengum besta borðið á staðnum.
Fórum svo í mollið larios í malaga. Tóti frændi var svo
sætur að skuttla okkur og  sækja...
Svo var að sjálfsögðu legið í sólbaðiUllandi

Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni sem er alveg ágætt svosem... Fólk er farið að rífast um okkur til að hjálpa þeim, því við erum svo duglegar Glottandi
 
Eftir tvær vikur þá erum við að fara í bústaðarferð í munaðarnesi,  ætlunin var að fara með ættingjunum en það plan breytt, svo að við förum með stelpunum í vinnunni Lenu og Diddu svo verða Ayesha, Sindri hennar Thelmu þar og tveir vinir hans ætla að kíkja á föstudeginumHlæjandi

Allir ættu endilega að fara á UNG á sunnudaginn í samhjálp....ég verð þar allaveganna, brjálað stuð.

Endilega commenta

See ya later
BM
 
21. september 2007 klukkan 01:09
3Amigas
3 athugasemdir
01ágúst

Nýjar Myndir:q





Fullt af myndum frá spáni og frá eyjum eru komnar innHlæjandi










*Birna kveður eina ferðina enn*


01. ágúst 2007 klukkan 01:17
3Amigas
3 athugasemdir
08júlí

Costa Del Sol

Hae hae vildum bara  kasta smá kvedju hér frá SpániHlæjandi

Hér er rosa gott ad vera...hitinn thaegilegur og ekki alltof heitt...
Búnar ad missa okkur í fatakaupum ekki annad haegt thegar
útsolur er í gangiHlæjandi
 Erum akkúrat núna í bátahofninni ad skoda okkur um og er planid ad
fara á Tex Mex ad borda í kvold... gerum ekkert annad en ad labbaHlæjandi 
enda eru kílóinn ad fjúka af okkurGlottandi hofum einu sinni ekki haft tíma til ad liggja í sólbadi, hofum ekkert farid á strondina sem er bara vid hótelid okkarHlæjandi
En planid vikunni er ad fara í verslunarferd í HM og Sevilla...svo er aetlum vid kannski í vatnrennibrautagardinn og Tívolí...

Soknum ykkar mikid og hugsum til ykkarGlottandi

Kvedja stelpurnar....
08. júlí 2007 klukkan 15:16
3Amigas
1 athugasemd
20júní

Myndir :q



 

Það eru komnar fullt af myndum... frá Galakvöldi, Útskriftinni hennar Thelmu, Mótinu & 17.JúniHlæjandi

P.S.það koma fleiri myndir af útskriftardeginum (kvöldið)Glottandi






20. júní 2007 klukkan 01:13
3Amigas
1 athugasemd
25maí

ATH! Miði til sölu:)







Hæ góðir hálsar, ég er með lausan miði til sölu á tónleika með tónlistarmanninum Glenn Kaiser (frá Chicago) þann 26 maí. Miðinn kostar 1500 kall, Jack London hita upp  
endilega látið mig vita sem fyrst ef þið hafið áhuga

Takk takk Hlæjandi




25. maí 2007 klukkan 00:18
3Amigas
1 athugasemd
21maí

Sálarball:)



SálarballHlæjandi

 

Á laugardagskvöldið fór ég með Hönnu lísu, Höllu, Melissu, Jeremy & Fanný á Sálarball á Nasa sem var rosalega gamanBrosandi

Við kynntumst Melissu & Jeremy um helgina, sem gistu á hotel klöpp...



Þau eru svo yndæl, það er varla hægt að lýsa því, þau buðu okkur öllum á ballið  nema Fanný, vegna þess að hún kom seinna...

En hún kynntist einhverjum gaur á föstdagskvöldinu sem er að vinna á Nasa og hitti hann í röðinni og fékk að fara frítt inn
very niceHlæjandi hún heppin...

Svo lenti ég í því að vera slegin í augað og er að drepast auganu, ekki gaman...
Melissa og Jeremy voru svo hrifin af Sálinni að þau ætla að kaupa sér diskinn áður en þau fara heim til US Glottandi

Sunnudaginn var Mamma með matarboð fyrir systkinin sín, voðalega sjaldan sem þau hittast öll saman....
geggjað niceBrosandi




Svo var farið á samkomu, Unglingarnir sáu um hana, krakkarnir sem fóru til pakistan voru með 3vitnisburði, myndir og vídeó frá ferðinni, vá hvað þetta var rosalegt...

Magnað hvað er að gerast þarna útiHissa

 

Svo eru Glenn Kaiser tónleikarnirHlæjandi um næstu helgi, vá hvað það verður mikið stuð, hann er svo góður... ef þið viljið vita meira endilega farið þá á
http://www.myspace.com/glennkaiser

Nýjar myndir eru komnar endilega kíkið Glottandi
P.S það koma fleiri myndir Melissa ætlar að senda mér hennar myndir frá sálinni.



Birna kveðurKoss
     
21. maí 2007 klukkan 01:05
3Amigas
2 athugasemdir
15maí




Úrslitin Ullandi

1 Serbía 268 - Það var alveg ágætt lag, maður hefði viljað vita hvað lagið var um...

2 Úkraína 235 - Virkilega fyndið lag:)

3 Rússland 207 - Ekki beint eurovision lag, flottar skvísur

4 Tyrkland 163 - Kom manni í danstuð, fíla það :)

5 Búlgaría 157 - HATA ÞAÐ LAG, trommurnar voru flottar

6 Hvíta-Rússland 145 - Minnti manni á Jams Bond


7 Grikkland 139 - Grípandi og gott lag

8 Armenía 138 - var ekki alveg að fíla það soldið of rólegt

9 Ungverjaland 128 - Ekkert smá flott lag og hún samdi það sjálf, geggjuð rödd...var í uppáhaldi hjá mér;)

10 Moldavía 109 - Mér fannst stelpan á fiðluni vera best

11 Bosnía-Hersegóvína 106 - Ekkert spes

12 Georgía 97 - Ömurlegt lag

13 Rúmenía 84 - Þeir voru góðir

14 Makedónía 73 - Man ekki eftir því

15 Slóvenía 66 - Of óperulegt

16 Lettland 54 - Man ekki eftir því

17 Finnland 53 - Flott

18 Svíþjóð 51 - Ágætt

19 Þýskaland 49 - Hann var virkilega góður og flottur

20 Spánn 43 - Mér fannst þeir vera góðir ekta spænskt lag þótt að það var sænskur maður sem samndi það..

21 Litháen 28 - Ekki nóu skemmtilegt

22 Frakkland 19 - Skondið lag og famkoma

23 Bretland 19 - Hrikalegt

24 Írland 5
-  Allt lagi lag, flott undirspil 


Hvað fannst ykkur vera best eða flottast?
Endilega komið með ykkar skoðanir á þessu...Hlæjandi


Comennta svo!

-BM-


15. maí 2007 klukkan 00:47
3Amigas
1 athugasemd
08maí

Hæhæ:q



Birna hér Ullandi 

Föstudagur:Ég ákvað að skella mér á samkomu á föstudagskv. Og hann Hafsteinn vinur
minn var að leiða,þegar hann er á sviðinu þá er stuð... skal ég segja ykkur! Eftir samkomu fór ég og Hanna lísa ásamnt Helene ingu heim til hennar...þar hittum við systur hennar Catherine maríu sem var veik heima  Fýldur 
Við spjölluðum soldið þar…Vorum á leiðinni í Heiðmörk, flestir voru að fara þangað að flippa e-ð…hehe!
Við áttum virkilega erfiðleikum að komast þangað og finna liðið, svo mikil myrkur og læti…

Laugardagur:
Ég svaf og svaf, var geðveikt þreytt eftir vikuna…Við systur pönntuðum mat heim og höfðum það bara kósý heima, Fanný og Hanna lísa komu í heimsóknvið hofðum á vídeó og spjallað um allt og ekkert ...Vorum að reyna að fá Hönnu lísu til að koma með okkur út í sumar, hún var virkilega opin fyrir því…En við vitum ekki hvort að það verði e-ð útur því..

Sunnudagur:
Við fórum í smáralindina að kaupa afmælisgjöf handa mömmu sem er orðin fimmtug konan.
Ég fór með Hönnu minni á Hornið  að borða, geggjað nice Brosandi Og fórum svo í bíó á Spiderman sem var soldið fyndin, allavega náðum við  að hlæja af henni…Verð að segja ykkur soldið, við lentum í ítalskri gamalli konu í bíóinu…þegar við vorum á salerninu, hún að böbblaði eitthvað á ítölsku og við áttum bara að skilja hana og fór framfyrir alla, greyið hún vissi ekki einu sinni að það voru allir að hlæja af henni.
Þetta var have to be there moment... Gaman af þessu! Glottandi

Mánudagur: Farið í vinnu like always, nóg að gera… það var hringt í mig í vinnunnaog spurt mig hvort að ég gæti fengið að fara heim í veisluna Brosandi
Mamma átti afmæli og var með fullt af gestum þegar ég kom heim, og ég var einsog ég veit ekki hvað…
Svo að ég var bara öskubuska, það var ágætt hehe Ullandi 

Svo vorum við að plana að hittast eftir vinnu á fimmtudaginn og horfa á eurovision saman á klúbbnum 


Það sem er framundan er: 

Ø     Mci er að koma heim í vikunni
Ø     Glenn Kaiser er að koma til landsins og halda tónleika Hlæjandi
Ø
     Útskriftin hennar Thelmu er 26.mai 





*Birna*

                                                                
08. maí 2007 klukkan 03:15
3Amigas
Engin athugasemd
30apríl

Helgin :q

 Helgin  

Jæja gott fólk þá er þessi helgi búin, á föstudaginn eftir vinnu fór ég og Thelma á kfc áður en við fórum á samkomu..
nammi nammUllandi

Samkoman var virkilega fín og fengum að heyra ýmislegt skemmtilegt t.d biblískólinn var að fara til Pakistan í dag og eru búin að vera að safna og reyna að fá styrki hér og þar...
Ekki nóg með það, það labbaði maður inn í kirkjuna seinustu viku og styrktu þau um hálfa milljónHissa...alveg  ótrúlegt.
Svo að þau þurftu ekki að borga krónu í ferðinni.


Hérna eru nemendurnir mciBrosandi

Svo var farið til Önnu vínkonu í heimsókn í Garðabænum geggjað flott íbúð.

Á laugardaginn fór ég í kolaportið með Hönnu minni og hittum Steinunni sem var með dóttur sinni Evu sætu...
Náði að kaupa kínajakka og tvö hringiBrosandi

Kíktum svo í café parís og spjölluðum út í eitt eins og stelpur geta gert endalaustHlæjandihehehe


Dúna sæta

Ég og Hanna lísa fórum svo að hitta hana Dúnu okkar sem er ein af þeim sem er í skólanum og fórum að borða saman á American style og fengum okkur ís og sona skemmtilegt þar hittum við hana Esther sem var rosalega gaman....


Sunnudaginn fór ég á samkomu í fíló sem var rosa góð...
eftir samkomu fór ég og Hanna á red chillí að borða skelltum okkur svo í samhjálp á samkomu þar í fyrsta sinn á ung, sem er höfðað til ungs fólks, þið sem vitið hver Maggi Stef er(sem var trommarinn í utangarðsmönnum) hann er að leiða sá samkomur...
Þessi samkoma var geggjuð, það var svo mikið stuðHlæjandi
Ég fer pottþétt aftur skal ég segja ykkur....hehe

svo var haldið heim á leið í vídeóUllandi



*Birna*


30. apríl 2007 klukkan 00:33
3Amigas
2 athugasemdir
19apríl

Gleðilegt sumar:q



Gleðilegt Sumar Koss





Það sem er í fréttum af okkur..

  • Ég lenti í árekstri með mömmu seinasta laugardagskvöld og fór á slysó í skoðun og það kom í ljós að ég er tognuð á hálsi, er búin að vera að drepast í bakinu og hnakkanum....
  • Hjúkrunarfræðingurinn ráðlagði mér að taka það rólega fyrstu daganna svo að ég hef ekki farið í vinnuna... ætla að reyna að fara á morgun
  • Thelma er núna byrjuð í prófum, fór í sitt fyrsta próf í gær af 12,  svo að hún verður bara á fullu í lestrinum næstu vikurnar
  • 20. apríl eða á morgun er svo galakvöld hjá henni í skólanum
  • Berglind vínkona á afmæli í dag og ég vil óska henni til hamingju með daginn sætaKoss
  • Annars er voða lítið að frétta...
                                    
                      

Góða helgi!

19. apríl 2007 klukkan 22:46
3Amigas
Engin athugasemd

Prófíll

  • Nafn: 3Amigas
  • Staður: Reykjavík

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

*Framundan*

Ellý frænka 26 ára: 26.okt
Herkvaðning: 26-28.okt & 3-4.nóv.
Matarboð:3.nóv
Mót:15-18.nóv


Spjallkubbur

..Augnablik

MySpace

Leit